Lesnir;

20.9.06

Við lok tvímánuðar

Kæru lesendur. Kæru vinir.
Þá er ég nú kominn aftur.
Héðan ofan af sjöundu hæð er mun betra útsýni en var á þriðju hæð – glugginn snýr í norður, og vel sést um miðbæinn, og yfir hverfið með tveggja hæða tréhúsunum, þar sem allar aspirnar mynda samfellda breiðu - alla leið að sjónvarpsturninum sem stundum hverfur dulúðlega í þoku niður að fimmtándu hæð, svo að hann sýnist geta verið óendanlegur á leiðinni upp.
Á nóttunni tvímennir turninn með sjónvarpsmastrinu á myrkurhimininn, saman kallast þeir á við systur sínar uppi við Kúznetsjíku-ána; reykháfana á beðmisvinnslunni og kolakyndiverinu.
---
Um daginn var ég að lesa mér til skemmtunar í kvikfjártali Stokkseyrarhrepps 1703, sem er í Árnesingi VII. Við þann lestur datt mér í hug hvort ekki gæti verið reynandi að setja saman samskonar lista yfir eigin búhagi. Listi sem slíkur gæti jú, ef til vill, á vissan hátt gefið innsýn í heim og tilveru fólks, á líkan hátt og kvikfjártalið og aðrar fornar eignaskrár gera það.

Búshluta og húsgagna skrá, herbergi № 703, haustið 2006:
Herbergið er 3,5 x 3,5 metrar að flatarmáli. Það gera 12 ¼ fermetra. Hér höfum við hvor sitt rúm, auk náttborða. Hér er fataskápur upp undir loft, stór bókaskápur, byrða undir skrínukost, fjórar vegghillur í funkisstíl, tvö borð, annað þeirra samanfellanlegt, hitt stækkanlegt, tveir kollar, annar að broti kominn, einn stóll með ótraustu baki og lítill skenkur. Ofan á honum höfum við eldahellu. Enn er hér ísskápur mittishár, sem drynur álíka títt og Strokkur gýs. Kalk er í lofti. Ef maður stendur í horninu í kvöldbirtu og horfir skáhallt upp, sést að skrifað hefur verið í það með fingri ,,Évgéní, ég elska þig” og annað þess háttar.
Veggfóður er með trjágreinamynstri, enda hafa mann fram af manni búið skógfræðinemar í herberginu. Annars hef ég tekið eftir því með Rússa, að þeir fóðra veggi, en mála húsgögn.
Fyrir utan herbergið er nokkurskonar fordyri, sem við deilum með næsta herbergi, sem er þriggja manna. Í fordyrinu, sem er lokað af frá ganginum, er vaskur og krani, og þar til hliðar eru tvö afhurðuð skot. Í öðru var áður sturta, en eftir að sturturnar tóku að leka var komið upp fjöldasturtum á fyrstu hæð. Í því skoti er nú geymsla. Hitt skotið er klósett. Hér eru límdar upp á salerninu kosningaauglýsingar, en það er almenn tízka.

Núna er ég semsagt fluttur upp á sjöundu hæð, og deili herbergi með bekkjarfélaga mínum, Alexandri Rosljakovi að nafni.

Þegar tveir menn flytja í eitt herbergi, þá koma þeir oft með sitthvað af búshlutum, og verður þá stundum tvennt af einhverju, en annað getur komið að góðum notum.
Auk ísskápsins er Alexandr með fiskabúr með gúbbí-fiskum í, straujárn, borvél og hljómflutningstæki. Enn: tvo vegglampa með löngum flúorperum, gólfmottur, gluggatjöld og veggspegil. Sjálfur er ég með, fyrir utan helluna; tölvu, meðalstóra hátalara, og 146 hillusentimetra af bókum, mest íslenzkum. Einnig vatnssuðukönnu, tvo lampa á borðbrík, samanbrjótanlegan grillstól og olíukyndara. Þá eigum við ókjör af leirtaui og nokkur stofublóm.
Fyrir ofan rúmið sitt er Alexander með stórt veggteppi, með mynd af dádýri. Fyrir ofan mitt rúm er veggspjald með 25 húnvetnskum kúm, sem sýna íslenzka kúaliti.
---
Senn lýkur þessum pistli, án frásagnar af Bjarmalandsför íslenzkra skógræktarmanna. En það kemur að því, að alveg einsog kvikfé var talið snemma á 18. öld, og tók litla stund, þá var þjóðsögum ekki safnað fyrr en á 19. öld, og þurfti mikla úrvinnslu á sögnunum til þess að koma þeim á blað.

7 skilaboð:

  • Mikið er þetta skemmtilegur pistill. En ég verð að spyrja: ertu að verja ritskoðunarstefnu Grimms-bræðra og annarra sögusafnara?

    Sagði Blogger Gunnar, kl. 1:51 e.h.  

  • Alveg hreint finnst mér þetta yndisleg lesning! Dettur mér í hug hvort ekki mætti safna skattskýrslum landsmanna í sama augnamiði?

    Sagði Blogger Heimir Freyr, kl. 10:00 e.h.  

  • Þær skattskýrslur sem eldri en 30 ára eiga að vera á Þjóðskjalasafni, hinar yngri eru líklega enn hjá ríkisskattstjóra. Þó kann að vera að þær hafi verið afhentar Þjskjs fyrir 30 ára regluna. Eru allar skattskýrslur landsmanna frá upphafi til, og aðgengilegar þeim er þær snerta, skv. upplýsingalögum. En þó ber að athuga að fyrir nokkrum árum hóf ríkisskattstjóri að taka á móti rafrænum skilum skattskýrslna og er ekki vitað hvernig hann og Þjskjs ætla sér að varðveita þá ása og núll til langframa - því pappírseintök eru ekki til af þeim skýrslun nema fólk hafi prentað þær út heima hjá sér. Vitanlega væri eina ráðið, hafi fólk ekki prentað þær út, að hafa samband við ríkisskattstjóra og biðja um pappírsafrit þeirra skýrslna sem eingöngu eru til á rafrænu formi. Þá á maður þær amk heima hjá sér, því lögboðin opinber skjalavarsla er ekki nógu trygg í þessum efnum. Eins er áhyggjuefni að engin hefur skrifað undir þessar rafrænu skýrslur eigin nafni, einungis með einhverjum sk. ,,veflykli", en óvíst er hvort slík undirskrift standist sem lögformlegur gjörningur fyrir dómstólum, reyni á sönnunarbyrði þessara skýrslna.

    Sagði Blogger Gunnar, kl. 9:22 f.h.  

  • Spurningu minni er enn ósvarað: Páll, ertu að verja ritskoðunarstefnu þjóðsögusafnara með orðum þínum um úrvinnslu?

    Eins skil ég ekki alveg samhengið í þessari setningu eins og hún leggur sig: ,,En það kemur að því, að alveg einsog kvikfé var talið snemma á 18. öld, og tók litla stund, þá var þjóðsögum ekki safnað fyrr en á 19. öld, og þurfti mikla úrvinnslu á sögnunum til þess að koma þeim á blað." Og er það löstur á annars góðum pistli.

    Sagði Blogger Gunnar, kl. 11:42 e.h.  

  • Ja, nuu er thad til ad taka ad jeg er ekki vel ad mjer um med hvada haitti naaukvaimlga sQfnun Grimms-braidra four fram, en jeg var nuu adallega med Joun Aarnason ii huga. En jeg jaata liika ad jeg er ekki hledur vel ad mjer um hans vinnubrQgd.
    Thad sem jeg aatti vid med siidustu klausunni er ad pistill um ferdalag tharfnast lengri tiima til thess ad koma honum aa blad heldur en thessi pistill, sem er ii rauninna ad mestum hluta til upptalning. Maalid er ad mjer fannst rjett ad skjouta einum pistli inn svona fljoutlega eftir ad jeg vairi kominn hingad austureftir, og thad hefdi ii raun verid edlilegast ad hafa hann um ferd skougraiktarfjelagssins hjerna nordurfraa, en til thess ad svo hefdi verid hefdi fyrsti pistillinn varla verid tilbuuinn fyrr en um midjan oktouber.
    Sidasta klausan ii pistlinum (thessi sem thuu hefur hjer innan gaisalappa) er thvii tilraun til ad uutskyyra thad, - og tekid daimi tengt kvikfjaartalinu eftir theirri reglu ad ii stuttum tekstum fari vel aa thvii ad koma aftur ad upphafinu ii undir lokin.
    Palli

    Sagði Anonymous Nafnlaus, kl. 10:29 f.h.  

  • Sæll Þetta er áhugaverður pistill og segir margt á milli línanna. Var umboðsmaður skattstjóra um tíma en er hættur því, þá hefði verið gott að hafa svona upptalningu. Bíð eftir skógræktarpistlinum frá þér.
    kveðja

    Sagði Anonymous Nafnlaus, kl. 12:50 e.h.  

  • Hæ Palli. Gaman að sjá bloggið þitt, sérstaklega þessa stórkostlegu lýsingu þína á herberginu. bestu kveðjur, Lýður
    blogcentraldeiltmeðlydurp

    Sagði Anonymous Nafnlaus, kl. 10:37 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Forsíða