Lesnir;

20.11.08

Hefur ríkisstjórn framið valdarán?

Nú tala allir um gjaldeyrissjóðslánið sem orðinn hlut. Það skýtur skökku við, þar sem engin lög þar að lútandi hafa verið samþykkt á Alþingi (sbr. liðinn nýsamþykkt lög á heimasíðu þingsins).
Ástæða þess að þetta er skrýtið, er sú að 40. grein stjórnarskráar Lýðveldisins [sic!] Íslands hljóðar svo:

„40. gr. Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.“


Ekki má taka lán, er skuldbindi ríkið, nema samkvæmt lagaheimild.

Vonandi þóknast ríkisstjórninni að uppfylla þetta formsatriði sem stjórnarskráin setur (áður en peningarnir koma, þ.e.)

Um gjaldeyrissjóðinn gilda lög nr. 105/1945, það eru lögin um stofnaðils Íslands að honum. Ekki orð um lántökur. Bara framlög til sjóðsins (ríkisstjórninni er heimilt að taka innanríkislán til að standa straum af þeim kostnaði, sbr. 3. gr.).

Á þessum síðustu og verstu er gott að hafa fyrstu grein stjórnarskráarinnar einnig í huga, hún hljóðar svo:

„1. gr. Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn.“


Sumsé, stjórnin er þingið. Ekki ráðherrarnir. Þeir eru bara framkvæmdavaldið. Þeir sumsé framkvæma þau lög sem Alþingi setur. Þegar kosið verður innan fárra mánaða verður fróðlegt að fylgjast með hvaða framboð munu setja þetta mikilvæga atriði á oddinn, að þingræðið verði endurreist. Niður með ráðherravaldið!

Ps. Í hvað á annars að nota þessa peninga?

---
Uppfært kl. 22:35

Lög nr. 60/2008 virðast kovera þetta, og því er lántakan nú ekki dæmi um valdníðslu ríkisstjórnarinnar.

---
Uppfært 21. nóv. kl. 13:06

Áðurnefnd lög, nr. 60/2008, heimila lántöku allt að 500 milljörðum. Nú virðist lántakan nema 700 milljörðum, og er því, nema mér hafi yfirsést eitthvað, lögleysa.

3 skilaboð:

  • Bezt væri að sá öllu gullinu í akrana, landi og þjóð til árs.
    Palli

    Sagði Anonymous Nafnlaus, kl. 6:45 e.h.  

  • Ja ráðherravaldið má svei mér prísa sig sælt yfir breyttum þankagangi alþýðunnar. Hér áður fyrr hefðu æðstu valdhafar í siðmenntuðum löndum, hafandi valdsumboð sitt frá hinum almáttka, verið teknir af lífi ef svona illa færi. Það væri sjálfkrafa vantraustsyfirlýsing. (Eða þetta var mér kennt í einhverri sagnfræðinni.) Nú kvartar stjórnarandstaðan og hinir eru með derring.

    Sagði Blogger Heimir, kl. 10:29 f.h.  

  • Þeir eru blessunarlega að ræða þetta á þingi núna, svo áhyggjur mínar voru ástæðulausar.

    Sagði Blogger Gunnar, kl. 12:06 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Forsíða